Spad i spilin
15 supporters
Betra bíður þín💜

Betra bíður þín💜

Oct 30, 2022

Var þér hafnað nýlega? Hugsanlega á óbeinan hátt, eins og t.d. að viðkomandi maður hætti að svara þér einn daginn eða eitthvað álíka? Þá gæti þetta mögulega átt við þig.

Þetta eru ekki 3 menn sem koma upp í byrjun, allt sami maðurinn sem sýnir sig á mismunandi hátt. Þetta er maður sem hugsanlega er með eigið fyrirtæki eða rekstur, eða yfirmaður á sínum vinnustað. Stoltur af því sem hann gerir og á, hugsanlega smá hrokafullur og frekur en býr að sjálfsögðu yfir góðum kostum líka. Án þess að fara út í nánari lýsingar á honum þá virðist ástæðan fyrir því að hann hætti að sýna áhuga eða nánast lét sig hverfa vera sú að hann fór að bera of miklar tilfinningar til þín og varð hræddur við það. Ekki víst að hann hafi sagt þér það, sennilega frekar óþroskaður tilfinningalega séð eða á erfitt með að tjá sínar tilfinningar. Þú kemur upp sem mjög gefandi og hjartahlý manneskja, hin fullkomna húsmóðir ofl. góðir kostir, hugsanlega smá meðvirk og of gjafmild, veit ekki af hverju það poppaði upp í hugann á mér, en kannski tengir þú við það.

Skilaboðin eru mjög skýr. Það er ekkert "að þér" eða eitthvað við þig sem gerði hann afhuga þér, heldur bara einfaldlega sú ástæða að hann varð hræddur við sínar tilfinningar til þín og ekki tilbúinn í neitt þannig, svo hann flúði. Sennilega einhver óuppgerð mál úr fortíðinni hjá honum sem gerði þetta að verkum. Hans missir, ekki þinn því það er ómögulegt og slæmt að fara í samband með manni sem er ekki tilfinningalega tilbúinn fyrir það eða til staðar, það hefði leitt til óhamingju. Svo það er betra að þetta hafi gerst núna en ekki seinna þegar meiri tilfinningar hefðu verið búnar að þróast þó að þetta sé erfitt.

Það sem þú þarft að gera núna er að hætta að bíða eftir því að eitthvað meira geti gerst eða að honum snúist hugur. Þú þarft að leyfa sjálfri þér að syrgja þetta, vinna úr þínum tilfinningum, í staðinn fyrir að afneita þeim hugsanlega. Byggðu sjálfa þig upp og styrktu sjálfstraustið á allan þann góða hátt sem þú getur því fljótlega muntu líka átta þig á því að þetta hefði aldrei gengið upp og þú ert betur sett ein en með manni sem er ekki til staðar tilfinningalega séð. Og þetta staðfesta englaspilin, fyrst stórt já sem staðfesting á því að þetta hefði aldrei gengið upp og svo hitt sem segir að eitthvað betra bíði þín. Þetta er það sem spilið sem ég póstaði í gær sagði, The angel of love. Ég hefði getað túlkað það á annan hátt en ég túlkaði það með því sem innsæið mitt sagði mér og svo kemur þetta upp núna í dag, nánari útskýring á túlkuninni í gær, svo ég gat ekki annað en sett þetta inn því einhver þarf á þessu að halda núna. Ég vona að sú eða þær sem þessi skilaboð eru til sjái þetta og ef svo þá megið þið endilega smella á hjartað sem "like" og það er nafnlaust, það sést ekki nafnið á þeim sem setja "like" á þetta á þessari síðu, veit hins vegar ekki með ummælin ef viðkomandi var ekki í áskrift.

Gangi þér/ykkur mjög vel að vinna úr þessu, kærar kveðjur 💖

Enjoy this post?

Buy Spad i spilin a coffee

More from Spad i spilin