Spad i spilin
15 supporters
Draumarnir ✨️

Draumarnir ✨️

Nov 08, 2022

Það er eins og æðri máttur eða einhver að handan sé að færa þessar fréttir, mjög spes að sjá og fallegt.

Ekki gefast upp á þínum draumum því fljótlega verður þér sýnd rétta leiðin eða tækifærin til að láta þá rætast og það mun koma eins og gjöf, ekki beint áþreifanleg gjöf held ég, meira eins og hjálp eða leiðsögn af einhverju tagi. Þessir draumar geta snúist um ýmislegt eins og t.d. nýtt starf, flutninga, nýtt samband ofl., hver og einn túlkar þetta fyrir sjálfan sig. Þessar breytingar munu krefjast hugrekkis og trausts því þetta virðist vera stórt eða stór skref að taka, en trúðu á sjálfa þig og hlustaðu líka á hjartað varðandi þessar breytingar.

Og aftur, þetta mun gerast fljótlega svo settu þig í gírinn og vertu viðbúin.

Gangi þér mjög vel með þetta ferli 💖

Ps. Einn af þessum draumum snýst örugglega um flutninga því ég fékk sýn af lyklaafhendingu í gær.

Enjoy this post?

Buy Spad i spilin a coffee

1 comment

More from Spad i spilin