Spad i spilin
15 supporters
Fasteignin 🏡

Fasteignin 🏡

Nov 18, 2022

Þetta fjallar um einhver vandamál sem tengjast fasteign, mjög spes og á líklegast bara við um eina manneskju en aldrei að vita svo sem.

Það eru búin að vera mikil samskipti við fleiri en einn aðila varðandi þessa íbúð, einhver rannsóknarvinna eða skoðanir væntanlega. En nú virðist vera að koma rétta lausnin í skilaboðum eða samtali sem mun greiða og hugsanlega auðvelda leiðina í þessu máli, eins og að rétti farvegurinn muni skyndilega opnast á einhvern hátt. Það vona ég innilega að sé rétt því það er komin mikil þreyta í fólk og sumir við það að gefast upp því þetta er búið að taka mikinn toll bæði andlega og líkamlega. Hugsanlega hefur þurft að leita lögmannsaðstoðar í þessu máli því réttlætisspilið kemur upp í þessari lögn og hefur gert það líka í fyrri lögnum sem aldrei náðu að komast á blað út af ruglingslegum spilum sem ég náði ekki að túlka sem gerist nú sjaldan. Góðar fréttir, réttlætið er með þér í þessu máli og þegar öllu er lokið þá verður þessi íbúð algjörlega draumaheimilið og regnboginn eftir óveðrið mun sýna sig 🌈🌻

Það sem kemur fram í englaspilunum er að þú þarft að halda áfram í einhvern tíma að vera ákveðin og ekki bakka eða gefa eftir í þeim málum sem þú vilt sjá til þess að verði gerð almennilega, og þú átt ekki að biðjast afsökunar á því að vilja hafa hlutina eins fullkomna og þú vilt, mundu það. Englaspilið í miðjunni talar um að þetta klárist í nálægri framtíð, ég set nánast aldrei tímamörk á neinar spár en ég fæ á tilfinninguna að þetta klárist fyrir jólin. Svo er það lokaspilið sem talar um batnandi heilsu, það má segja að það sé eiginlega augljóst því stress fer mjög illa með mann bæði andlega og líkamlega, en þú þarft sjálf að setja þínar þarfir í forgang núna vinan. Sinntu sjálfri þér betur og ábending um að taka til í mataræðinu því það hefur víst ekki verið of gott undanfarið, þú þarf meiri næringu, hollari og hreinni mat og bættu við góðum vítamínum og steinefnum, sérstök ábending um magnesíum, d vítamín og hollar olíur.

Þá er þetta komið og ég vona innilega að þessi mál leysist sem fyrst og að það jákvæða sem kom upp í spilunum rætist, kærleikskveðja 🙏❤️

Enjoy this post?

Buy Spad i spilin a coffee

1 comment

More from Spad i spilin