Spad i spilin
15 supporters
Ást og þolinmæði 💞

Ást og þolinmæði 💞

Nov 21, 2022

Þessi spá minnir mig á aðra stutta sem kom upp síðla sumars minnir mig, þar sem samskipti byggð á ástríðum gætu þróast í meira, hugsanlega samband. Þetta er þannig dæmi, maður sem er búinn að vera "player" í einhvern tíma og ekki tilbúinn að binda sig. Það er vegna þess að hann er ekki búinn að jafna sig ennþá eftir skilnað eða samband sem stóð yfir í mörg ár. Það er talsverð hræðsla í gangi gagnvart því að skuldbinda sig út af fortíðinni, en hér kemur upp að fljótlega verði hann tilbúinn til þess því þessi kona sem hann er að hitta er algjörlega hans týpa, þau smella saman eins og flís við rass. Hann hefur verið þungur andlega í einhvern tíma og frekar erfitt fyrir hann að tala um sínar tilfinningar, en svo kemur þetta upp svo fyndið, eins og að hann vakni einn daginn og taki ákvörðun um það að láta vaða. Og þegar það gerist þá munu hlutirnir ganga mjög hratt fyrir sig, en það gæti verið einhver smá bið í það skv. þeim spilum sem ég ákvað að draga úr 2 mismunandi stokkum til að fá skýrari mynd á þetta. Leiðbeiningarnar sem koma fyrir konuna eru þær að vera jákvæð og þolinmóð en líka að hafa í huga að þetta gæti þróast á annan hátt en hún hefur í huga, svo ekki einblína á eina leið varðandi þetta eða vera með ákveðinn tímaramma í huga, sem sagt að hugsa ekki þannig að ef ekkert breytist fyrir einhvern x langan tíma að þá sé þetta búið. Það er svo bjart og fallegt fram undan og mikil gleði svo mundu ráðin og gangi ykkur vel 💖

Enjoy this post?

Buy Spad i spilin a coffee

More from Spad i spilin